Fara í meginmál

LEIKNIR hestakerrur

Íslensk hönnun og framleiðsla síðastliðin 26 ár, þar sem við leggjum mikla áherslu á gæði umfram allt og þjónustu.

Helstu kostir

  • Sérstaklega hönnuð fyrir íslenskt veðurfar — tekur minni vind á sig bæði í hliðarvind og framan á sig, sem gerir hana stöðuga í slæmum veðrum og minnkar eyðslu ökutækisins.
  • Ekkert skrölt og glamur, sem gerir ferðalagið ljúft fyrir hrossin.
  • Bjartar og rúmgóðar.
  • Álgólf með heithúðun upp á hliðar sem auðvelt er að þrífa og gefur mun minni lykt — mottur eru alveg óþarfar, þær safna bara lykt og drullu.
  • Mjúkar og fjaðrandi, sem gerir ferðalagið mun betra fyrir hrossin.
  • Sérhannaðar slár á milli hrossa sem detta úr við nauðhemlun — þær hafa margsannað sig og valda minni meiðslum.
  • Álið í okkar kerrum er afar sterkt og brotnar ekki ef á reynir. Það gerir hins vegar trefjaplast og krossviður.
  • Rúmgóð hnakkageymsla með öllu sem til þarf.

Við mælum með að nota spæni í okkar kerrur — viðmótið er eins og hrossið sé að fara inn í stíu og veitir stöðugleika.

Veldu gæði, veldu LEIKNIR hestakerrur

Segðu okkur hvað þig vantar

Við förum yfir verkið með þér, mælum og gerum tilboð. Hringdu eða sendu okkur línu.

Hringja: 554 0040